
Á föstudagskvöld: Dásamlegir tónleikar ásamt syni mínum og heitum aðdáenda Vilhjálms. Ég grét yfir sumum lögum en hló yfir öðrum skemmti mér stórvel.
Nokkur texta brot:
Alveg er sama hve ánægður dvel, í allsnægtum mér verður ekkert um sel...
Hamingjan drukknar sem dægurfluga í draumum um meira á alsnægtarborð
Lítill drengur ljós og fagur lífsins skilning öðlast senn.. hjálp Jónsi og sonur hans Vilhjálms sungu þetta - það var æði.
Sú bæn er mín, ég bið til þín, að þú efist ekki um þessi orð, sem ég skrifa um borð - ég hugsa heim til þín - ástin míííín
Ég held við ættum stundum að hlusta aðeins betur á hugrenningar þeirra sem erfa skulu land. Því kannski er næsta kynslóð, kynslóðin sem getur komið fram með svörin þar sem silgdum við í strand.
Þá dreymir mig um bassa sem botninn fylla kann og bið svo guð um sólógítar til að styðja hann.. Laddi tók þetta með stæl

Laugardagskvöld: Janis 27 með góðum vini mínum - Váááááá!!! Bryndís Ásmundardóttir er stórkostleg þegar hún syngur lögin hennar Janis - og ilmur kryddar þetta vel upp með frábærlega góðum leik.. Ég skemmti mér ótrúlega vel..
Nokkur textabrot:
You say that it´s over baby..... Won´t you move over...
Oh! take a nother litle piece of me heart now baby..
I need a man to love me...
Bobby sing the blues... holding Bobbys hand in mine .. freedom is just a nother word for nothing left to loose... for me and Bobby Mcgee... nonononnanah..
Oh Lord wan´t you buy me a mercedes Bens..
Men hvað manneskjan söng vel - ég er búin að ákveða það að ef ég fæ ekki að vera góð söngkona í næsta lífi - þá er ég hætt í þessum leik!!
Góðar setningar Janisar:
Hva! er one night stand eitthvað verra en 40 ára leiðindi???
Helvítis læknar - mála skrattann á vegginn og vilja svo fá borgað fyrir það!!
Mér líður eins og lest - alveg á fullri ferð - bara ekki á teinunum!
Mæli með því að hlusta á þessa listamenn, sem bæði dóu ung og á hinum dásamlegu hippaárunum...
Stundum veit ég ekki hvort ég á að syrgja eða þakka fyrir það - að ég var ekki uppi á þeim tíma. Ég hefði pottþétt farið til San Francisco og tekið þátt í partýinu þar :-)
AHH - Ást og friður veri með ykkur -
kveðja
Prinsessan